Lóa kunni vel við sig í fríi. Grandskoðaði hvern krók og kima, hvert sem hún kom. Fór í fílaleiðangra, skógarleiðangra, ævintýragarð, til London í lest og margt fleira. En að hennar mati er eldhúsið í Norwich hræðilegur staður og það tók hálftíma fyrir hana að jafna sig og ná sönsum eftir ferð þangað inn. Lóa er alsæl að vera komin heim til sín og leikur nú á alls oddi. Finnst hún hafa fullorðnast svo mikið eftir að hafa flogið til “suðræna landsins” að hún situr rígmontin í Bumbó sínum og flytur hverja ræðuna á fætur annarri.
Það hefur ýmislegt drifið á daga Lóu Margrétar að undanförnu. Skírn, leikfélagar í heimsókn, fékk að vera úti á kaffi húsi með Árna og Helenu, Afi Þorsteinn kom í heimsókn og Eva og Stymmi komu loksins aftur frá útlöndunum svo fátt eitt sé nefnt. Svo hefur Lóan bætt nokkrum veltum frá maga yfir á bak á afrekaskránna síðustu tvær vikurnar.