Loksins nýjar myndir! New York frænkurnar, Leyla Blue, Sun Shine og Coco Lou komu í heimsókn. Mikið gaman og mikið fjör í kringum þær eins og vanalega:) Lóa er farin að standa upp sjálf og ýta Hókus Pókus stólnum á undan sér, sem er nú varla í frásögur færandi eftir að Hrafntinna vinkona hennar kom í heimsókn um daginn og skreið út um allt og stóð upp og prílaði 7 mánaða! Lóa samt dugleg;) Svo er hún byrjuð á framhaldsnámskeiði í sundi og finnst það ekki leiðinlegt.