November 27, 2008

Lóa er komin með tönn

  

  

  

  

  

  

  

  

  

 

November 11, 2008

Lóa lasarus

Kristinn kom til að kyssa Lóu sína og hún var ahhh við hann á móti. Lóa Margrét fékk RS-vírus og var lasin í síðustu viku en er nú orðin hún sjálf og spræk sem endranær. Svo að lokum þá finnst Lóu nú ekki leiðinlegt að fara í bað, en þá er buslið svo mikið að allt baðherbergið verður á floti. 

  

  

  

  

  

  

  

  

  

  

  

   

 

November 4, 2008

Sunddrottningin - Lóa og lærapokarnir himnesku

Lóa Margrét hefur verið á sundnámskeiði síðustu 10 vikurnar og þykir það nú ekki leiðinlegt! Hún fer í kaf og er send á milli foreldranna, fer af bakkanum og ofan í, stendur sjálf í lófa manns og leikur fleiri kúnstir. Ekki spillti það heldur fyrir að Kristinn Rafn var með svo þau gátu tekið höndum saman um að busla og skvetta á foreldrana.